Spurningar & Svör


Hvað er varanleg förðun?
Varanleg förðun er meðferð sem fellst í ásetningu þar til gerðra lita undir yfirborð húðar til að skerpa línur augna, augabrúna og varalínu. Við sérhæfum okkur í mjúku og náttúrulegu útliti varanlegrar förðunar og gerum okkar besta til að mæta þörfum viðskiptavina okkar. Meðferðin tekur tvö skipti með 4-6 vikna millibili.
Verður útlitið náttúrulegt?
Varanlega förðunin þín mun líta mjög eðlilega og náttúrulega út. Það eru mismunandi litir til að velja úr til að passa við húð og háralit. Við munum hjálpa þér að velja réttu litina til að ná fram dýpri og skarpari lögun og ná þannig að draga betur fram form og eiginleika andlitsins.
Hvernig er þetta gert?
Brúnir: Sérfræðingurinn teiknar upp form og þegar þið eruð báðar sammála um hlutföll og lag brúnanna er byrjað. Aðferðin sem notuð er heitir Microblading og gerðar er örfínar línur sem líkjast hárum og verða brúnirnar mjög náttúrulegar.
Augu: Augnlína er ekki teiknuð á eins og brúnirnar. Lína er sett í inn á milli augnháranna og hægt er að velja um að fá bara efri línu eða setja líka á neðri augnháralínu. Þykktin á línunni er svo gerð í samráði við þína ósk. Oft er línan gerð þykkari í seinni meðhöndlun þar sem alltaf er hægt að bæta við en ekki taka til baka.
Varir: Hægt er að velja um mismunandi þykkt varalínu og liti. Varalínan er alltaf teiknuð upp áður en byrjað er og þá sést útkoman vel. Hver meðferð tekur um eina og hálfa klukkustund.
Er þetta sárt?
Deyfikrem hafa verið hönnuð sérstaklega fyrir varanlega förðun. Deyfikrem er borið á svæðið áður en og meðan á meðferð stendur til að tryggja sem minnsta sársauka mögulegan. Sumir lýsa tilfinningunni sem „klóri". Það er algengt að heyra að meðferðin hafi ekki verið eins sársaukafull og í fyrstu var haldið.
Hvernig mun ég líta út strax á eftir?
Þar sem hrúður myndast á meðferðarsvæðinu mun liturinn vera dekkri og skarpari fyrstu vikuna. Eftir 5-7 daga mun liturinn dofna um 10-15%. Allir viðskiptavinir fá góðar upplýsingar um meðhöndlun svæðis eftir meðferðina og fær viðskiptavinurinn með sér græðandi krem heim til áframhaldandi meðferðar. 
Er þetta öruggt?
Já. Við fylgjum ströngum hreinlætis og öryggisstöðlum með því að nota einnota nálar og búnað. Einnig eru notaðir ofnæmisprófaðir litir sem innihalda engin lyktarefni eða önnur ertandi efni við meðferðina.
Hversu lengi mun þetta endast?
Varanleg förðun er til langstíma en dofnar með tímanum. Þegar að þú venst förðuninni er ekki óalgengt að vilja meira. Til að sjá til þess að förðunin haldist falleg þarf að fríska hana upp á 1 til 2 ára fresti. Því dekkri sem litirnir eru, t.d. svartur, því lengur endist hann. Ljósari litir eru viðkvæmari og veikari fyrir áhrifum sólar, sunds og endurnýjun húðar og endast þar með styttra í húðinni.
Hver er batatíminn?
Þú munt fara í gegnum 3 gróandastig. Þ.e. gróandi, flögnun og dofnun lita. Liturinn sem valinn er verður mjög dökkur fyrstu 5 - 7 dagana en mun svo lýsast um ca 10-15% þegar hrúðrið sem myndaðist á meðhöndlaða svæðinu dettur af.  
Sjúkdómar   
Mikið er um að konur sem hafa misst hárið vegna sjúkdóma eða lyfjameðferðar komi til okkar. Mjög gott er að láta setja línuna í brúnirnar áður en hárið fer, ef því verður við komið. Þá er öruggt að þegar hárin koma aftur vaxa þau inn í tattooið. Hægt er að setja augabrúnalínuna í á meðan á lyfjameðferð stendur en samt er gott að vera í samráði við sinn lækni um tímasetningu meðferðar. Við erum viðurkendur meðferðaraðili hjá sjúkratryggingum Íslands og gegn framvísun reiknings frá okkur fæst endurgreiðsla fyrir meðferðaraðila í krabbameinsmeðferð.
Get ég farið í vinnuna strax eftir meðferð?
Já þú getur það. Förðunin verður dekkri fyrst eftir meðferðina en það þýðir ekki að þú þurfir að taka frí frá vinnu. Augnlína mun geta valdið bólgu í húð í ca. 1 - 3 daga eftir meðferð.
Má ég nota farða strax eftir meðferð?
Þú mátt ekki setja förðunarvörur ofan á varanlegu förðunina í ca. 7 daga eftir meðferð. Það er mjög mikilvægt að halda svæðinu hreinu fyrst á eftir.
Get ég fengið varanlega förðun ódýrari?
Það sparar tíma og óþægindi ef meðferðin er framkvæmd rétt í fyrsta skipti. Þetta eru ekki þau kaup þar sem þú leitast eftir því að finna lægsta mögulega verðið, sérstaklega þar sem þetta er varanleg förðun í andliti. Kostnaðurinn mun svo sannarlega endurspegla reynslu og hæfileika þess sem framkvæmir meðferðina, svo veldu vel. Líkt og með aðra þjónustu, þá færðu það sem þú borgar fyrir.
Hvernig vel ég réttan sérfræðing?
Spurðu réttra spurninga. Mikilvægustu þættirnir eru reynsla og hæfni sérfræðingsins. Annað ráð er að horfa í kringum sig á snyrtistofunni. Metnaðarfullur og fyrsta flokks sérfræðingur fjárfestir í starfsemi sinni og notast við nýjasta og besta búnaðinn til að fá sem bestu niðurstöðu.
Eftirfylgni og upplýsingar 
Gott samráð við viðskiptavin er lykilatriði svo og að öllum spurningum sé svarað til þess að niðurstaða verði í samræmi við óskir viðskiptavinarins. Fullt samþykki viðskiptavinar um liti, lögun og heildarniðurstöðu meðferðarinnar verður að vera til staðar áður en meðferðin hefst. Farið er yfir áhættuþætti til að viðskiptavinur sé eins vel upplýstur og mögulegt er. Allar áhættur, leiðbeiningar um hreinlæti og umönnun eftir meðferð eru ræddar og vel útskýrðar til að bati húðarinnar verði sem bestur.