|
|
Ath! Öllum andlitsmeðferðum fylgir húðgreining, ráðleggingjar um rétta umhirðu húðar og val á réttum húðsnyrtivörum fyrir þína húðgerð.
|
andlitsmeðferðir
Lúxusandlitsbað - 105 mín. Yfirborðshreinsun, húðin hituð og djúphreinsuð. Kreistun ef þarf og síðan 20 mínútna nudd á andliti, hálsi og öxlum. Lúxusmaski og augnmaski fyrir viðeigandi húðgerð. Dagnæring. Andlitsbað með húðslípun - 90 mín. Yfirborðshreinsun, húðin hituð og djúphreinsuð. Húðslípun með Ultrapeel Crystal og á eftir er 20 mínútna nudd á andlit, háls og axlir. Maski fyrir viðeigandi húðgerð. Dagnæring.
Andlitsbað - 90 mín. Yfirborðshreinsun, húðin hituð og djúphreinsuð. Kreistun ef þarf og síðan 20 mínútna nudd á andlit, háls og axlir. Maski fyrir viðeigandi húðgerð. Dagnæring. Nudd og maski - 60 mín. Yfirborðshreinsun og djúphreinsun. 20 mínútna nudd á andlit, háls og axlir. Maski fyrir viðeigandi húðgerð. Dagnæring. Húðhreinsun - 60 mín. Yfirborðshreinsun, húðin hituð og djúphreinsuð. Öll óhreinindi kreist og djúphreinsimaski fyrir viðeigandi húðgerð. Dagnæring. Bakhreinsun - 60 mín. Yfirborðshreinsun, húðin hituð og djúphreinsuð. Öll óhreinindi kreist og djúphreinsimaski fyrir viðeigandi húðgerð. Dagnæring. Húðslípun - 60 mín. Ultrapeel Crystal. Ein helsta nýjungin í húðmeðferð í dag og byggist á örslípun húðarinnar með mikrókristöllum sem gera það að verrkum að húðin endurnýjar sig hraðar - ör og lýti minnka eða hverfa alveg. Ultrapeel Cristal vinnur á áhrifaríkan hátt á hrukkum, húðsliti, örum, litablettum og bólugrafinni húð (acne). Meðferðin er sársaukalítil. Húðin jafnar sig fljótt og fær strax á sig frískari blæ. Hægt er að fá húðslípun með annarri andlitsmeðferð.
Efst á síðu
Augu
Litun og plokkun eða vax á brúnir - Augnabrúnalitun og litun á augnhár. Augabrúnir mótaðar með plokkun eða vaxi.
Augnhárapermanett - Lyfting fyrir augnhárin, endist í 6 - 8 vikur.
Augnmaski - 30 mínútna meðferð í kring um augu. Bæði hægt að fá hrukkumeðferð og bjúglosandi meðferð. Meðferðin skiptist í nudd í kring um augu og augnmaska á eftir.
Efst á síðu
Líkamsmeðferðir
Heitsteinanudd - 80 mín. Aldagömul nuddaðferð. Nuddað er með olíu og 50° heitum steinum. Þessi nuddaðferð nær mun dýpra er hefðbundið nudd og veitir mikla slökun. Þetta nudd hentar öllum og er gott við vöðvabólgu, gigt og almennum stirðleika. Einnig er nuddið bjúglosandi. Þetta er besta nuddið. Heilnudd - 55 mín. Allur líkaminn nuddaður frá toppi til táar. Gott vöðvanudd. Slökunarnudd – 55 mín. Spennulosandi, slakandi og eykur vellíðan og getu til að slaka á. Partanudd – 45 mín. Áhersla lögð á álagssvæði t.d. slæma verki á ýmsum stöðum s.s. axlir og bak. Comfort slim - 20 mín. Fjölbreyttasta og þægilegasta grenningar og vöðvaþjálfunartæki sem völ er á. Appelsínuhúð - húðstyrking - bjúgur – húðþétting.
Efst á síðu
Fætur
Fótsnyrting – 50 mín. Neglur eru snyrtar og klipptar. Naglabönd mýkt og snyrt. Hörð húð mýkt upp og nudduð með viðeigandi kremi. Neglur lakkaðar.
Litað gel á táneglur 60 mín. Gel í mörgum litum. Endist í 3-4 vikur og hægt er að fá lakk í sama lit til að nota þegar nöglin fer að vaxa fram.
Fótaaðgerðir – 50 mín. Á stofunni starfa þrír löggildir fótaaðgerðafræðingar. Þynnum þykkar neglur. Fjarlægjum líkþorn og harða húð. Setjum spangir á niðurgrónar neglur. Við gefum ráðleggingar við húð og naglasvepp o.fl.. Við erum sérhæfðar í meðhöndlun fyrir sykursjúka.
Efst á síðu
Hendur
Handsnyrting – 60 mín. Neglur eru snyrtar og þjalaðar, naglabönd mýkt og snyrt. Róandi handnudd með djúpnærandi handkremi. Lökkun ef óskað er, með lituðu lakki eða french manicure.
Parafín handmaski - 15 mín. Sérlega góður og djúpnærandi maski fyrir hendur. Hunangsgelneglur – 90 mín. Framlenging á eigin neglur, neglurnar verða eðlilegar og sterkar. Notað er Calgel hunangsgel sem er náttúrulegt og án allra efna sem geta skaðað nöglina.
Hunangsgel á eigin neglur – 60 mín. Góð styrking á eigin neglur til að þær vaxi fram án þess að brotna. Þínar neglur vaxa fram með gelinu. Notað er Calgel hunangsgel. Litað gel á neglur - 60 mín. Gel í mörgum litum. Endist í 3-4 vikur og hægt að fá lakk í sama lit til að nota þegar nöglin fer að vaxa fram.
Efst á síðu
Háreyðing
Vaxmeðferðir - Meðhöndlun á óæskilegum hárvexti. Vaxmeðferðir á fætur og í nára, undir hendur og í andliti.
Súkkulaðivax – Sérstaklega ætlað á viðkvæma staði eins og andlit, undir hendur og í nára. Frábær útkoma en aðeins hærra verð.
Háreyðing - Varanleg háreyðing með rafstraumi. Nál er stungið í hársekkinn og straumur sendur niður, sem eyðir hárinu. Oft þarf samt að endurtaka meðferðina nokkrum sinnum.
Efst á síðu
Ýmsar meðferðir
Su - Do Airbrush - 20 mín. Brúnkumeðferð. Endingartími er 5-7 dagar. Meðferð sem er að taka við af ljósabekkjunum og eru litarefnin náttúruleg og algjörlega skaðlaus húðinni. Við spreyjum á húðina inn í þar til gerðum klefa og þarf að bíða í 10 mínútur eftir meðferð, áður en farið er í fatnað. Hægt er að fá sprey til að viðhalda brúnkunni heima.
Göt í eyru - Lokkunum er skotið í eyrun úr dauðhreinsuðum pakka. Enginn sýkingarhætta. Við höfum 5 ára aldurstakmark.
Förðun - 45 mín. Förðun við öll tækifæri. Viðeigandi förðun er vandasamt verk og felst aðallega í því að gera fallega andlitsdrætti meira aðlaðandi og draga úr vanköntum.
• Dagförðun • Kvöldförðun • Brúðarförðun með prufu
Efst á síðu
|